Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Synjun námsstyrkjanefndar um greiðslu námsstyrks

Ár 2012, föstudagurinn 17. ágúst, er kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldur

 

ÚRSKURÐUR:

I.

Kröfur aðila.

Með bréfi sem barst mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þann 29. maí 2012, kærði A f.h. kæranda (hér eftir nefndur B), ákvörðun námsstyrkjanefndar, dags. 12. mars 2012, um að synja umsókn hans um greiðslu námsstyrks fyrir skólaárið 2011-2012 skv. lögum um námsstyrki nr. 79/2003 og reglugerð um námsstyrki nr. 692/2003, með áorðnum breytingum.

 

Með hliðsjón af gögnum málsins er krafa kæranda skilin þannig að þess sé krafist að ákvörðun kærða verði felld úr gildi og honum verði úrskurðaður námsstyrkur fyrir skólaárið 2011-2012.

Af hálfu kærða er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði staðfest, enda sé hún í samræmi við lög og reglur.

II.

Málsatvik.

Kærandinn, sem stundaði nám við [framhaldsskólann] X, sótti um námsstyrk skv. lögum um námsstyrki og reglugerð um námsstyrki fyrir skólaárið 2011-2012. Með bréfi kærða, dags.  12.  mars sl., var umsókninni synjað á þeim grundvelli að nám á fyrsta ári X félli ekki undir ákvæði laga um framhaldsskóla en skv. a-lið 1. gr. reglugerðar um námstyrki nr. 692/2003 ætti nemandi rétt á jöfnunarstyrk stundaði hann reglubundið nám á framhaldsskólastigi sem fellur undir ákvæði laga um framhaldsskóla nr. 80/1996, með áorðnum breytingum.

 

Með bréfi, dags.  29. maí sl., skaut kærandi ákvörðun kærða til ráðuneytisins. Samkvæmt 6. gr. b-liðar forsetaúrskurðar nr. 125/2011 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem er kveðinn upp með vísan til 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og laga um Stjórnarráðið nr. 115/2011 kemur fram að mennta- og menningarmálaráðuneytið fari með námsaðstoð, þar á meðal: námslán og námsstyrki. Ákvörðun nefndarinnar er því réttilega kærð til mennta- og menningamálaráðuneytisins og barst hún ráðuneytinu innan kærufrests, sbr. 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

III.

Málsmeðferð.

Stjórnsýslukæra kæranda var móttekin 30. maí 2012. Með bréfi, dags. 19. júní 2012, leitaði ráðuneytið umsagnar kærða um kæruna. Umsögn kærða barst ráðuneytinu 25. júní 2012. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 4. júlí 2012, voru athugasemdir kærða kynntar kæranda og honum gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi dags. 15. júlí 2012.

IV.

Málsástæður og lagarök kæranda.

Í stjórnsýslukærunni kemur fram að kærandi hafi stundað nám við [framhaldsskólann] X. Hann hafi sótt um jöfnunarstyrk haustið 2011. Hann hafi fengið bréf frá Lánasjóði íslenskra námsmanna í janúar 2012 þar sem synjað var að veita styrk sökum þess að námsárangur hafi ekki verið staðfestur. Kærði kærandi synjunina til námsstyrkjanefndar sem synjaði styrkveitingu en á þeim grundvelli að X félli ekki undir ákvæði laga um framhaldsskóla eins og krafa er gerð um í a-lið 1. gr. reglugerðar um námsstyrki nr. 692/2003. Kærði var þá búin að eiga í nokkrum samskiptum við námsstyrkjanefnd og benti á að í 1. gr. reglugerðarinnar mætti finna heimild til handa námsstyrkjanefnd til að styrkja annað hliðstætt nám á framhaldsskólastigi. Einnig benti kærandi á að í skýrslu sem menntamálanefnd Alþingis hafi gefið út kæmi greinilega fram að allt starf innan X væri í lagi en […].

 

Kærandi telur að nám við X vera styrkhæft og bendir á að honum hafi verið tjáð að svo væri af starfsmanni Lánasjóði íslenskra námsmanna. Einnig bendir kærandi á að hann hafi fengið metnar allar einingar sínar inn í annan framhaldsskóla og telur þar með að skólinn hljóti að uppfylla skilyrði reglugerðarinnar um hliðstætt nám.

 

V.

Málsástæður og lagarök kærða.

Í rökstuðningi fyrir hinni kærðu ákvörðun, sbr. bréf kærða, dags. 20. júní sl., segir að kærandi hafi hafið nám haustið 2011 við X á […] námsári skólans. Í skólanum tekur námið […] námsár en skv. staðfestingu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu falli […] námsárið ekki undir ákvæði laga um framhaldsskóla. Í reglugerð um námsstyrki komi fram að nám verði að vera að minnsta kosti eins árs skipulagt nám sem falli undir ákvæði laga um framhaldsskóla og því var það niðurstaða nefndarinnar að kærandi væri ekki styrkhæfur.

 

Kærði telur ákvörðun sína í máli þessu vera í samræmi við lög og reglur og fer fram á það að ráðuneytið staðfesti hana.

VI.

Rökstuðningur niðurstöðu.

 

Um skilyrði laga um námsstyrki, nr. 79/2003.

 

Í lögum um námsstyrki er mælt fyrir um skilyrði styrkveitinga. Samkvæmt 2. gr. laganna njóta þeir nemendur sem stunda reglubundið framhaldsskólanám hér á landi og verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins réttar til námsstyrkja. Í 8. gr. laganna segir að mennta- og menningarmálaráðuneytið setji reglugerð er mæli nánar fyrir um hvernig lögin skuli framkvæmd.

 

Reglugerð um námsstyrki nr. 692/2003.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur mælt nánar fyrir um framkvæmd laganna. Við móttöku framangreindrar stjórnsýslukæru var í gildi reglugerð nr. 692/2003, með síðari breytingum, sem kærði hefur byggt á við úrlausn máls þessa. Samkvæmt 1. mgr. a-lið 1. gr. reglugerðarinnar eiga nemendur sem stunda reglubundið nám á framhaldsskólastigi hér á landi, sem ekki er á háskólastigi eða gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi, enda sé um að ræða a.m.k. eins árs skipulagt nám við framhaldsskóla sem fellur undir ákvæði laga um framhaldsskóla. Í 2. mgr. a-liðar 1. gr. reglugerðarinnar kemur fram að námsstyrkjanefnd er heimilt að styrkja annað hliðstætt nám á framhaldsskólastigi.

Niðurstaða.

Umsókn kæranda um jöfnunarstyrk fyrir skólaárið 2011-2012 var synjað þann 12. mars sl. Í máli kæranda reynir fyrst og fremst á það hvort að [framhaldsskólinn] X falli undir skilyrði reglugerðarinnar til að kærandi geti fengið styrk enda uppfyllir kærandi önnur skilyrði.

Ekki verður séð að námsstyrkjanefnd hafi tekið afstöðu til þess hvort að X uppfylli skilyrði reglugerðarinnar á þann hátt að þeir nemendur sem uppfylla önnur skilyrði hennar teljist styrkhæfir skv. 2. mgr. a-liðar 1. gr. reglugerðarinnar og telst málið þannig vanreifað af hálfu nefndarinnar. Með því að taka ekki afstöðu til þess ákvæðis telur ráðuneytið að námsstyrkjanefnd hafi ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en þar kemur fram að stjórnvald skal sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun sé tekin í því. Því ber að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi eins og nánar greinir í úrskurðarorðum.

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun námsstyrkjanefndar um að synja B um námsstyrk vegna náms við [framhaldsskólann] X skólaárið 2011-2012, dags. 12. mars 2012, er felld úr gildi.  Lagt er fyrir námsstyrkjanefnd að taka málið fyrir að nýju með hliðsjón af þeim sjónarmiðum er framkoma í úrskurði þessum.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum